Útgefið efni

  • Brunnbáturinn við bryggju í Chile

    Háafell kaupir brunnbát

    Báturinn mun auka afkastagetu Háafells til seiðaflutninga, flutnings á sláturfiski og mögulegra lúsameðhöndlana með ferskvatni. Jafnframt gefast möguleikar á bættum smitvörnum með því að minnka áhættu á því að smit berist inná eldissvæði Háafells þar sem gert er ráð fyrir að brunnbáturinn verði að uppistöðu staðsettur í Ísafjarðardjúpi. Fyrir á Háafell brunnbátinn Papey sem reynst hefur afburða vel en er orðinn of lítil og ekki með sömu tæknilegu eiginleika og nýji báturinn.

  • Kynning á umhverfismati

    Þriðjudaginn 25. mars kynnir Háafell umhverfismatsferli sem stendur yfir. Kynningin fer fram í Bryggjusal Edinborgarhússins kl. 17.

  • Aukin afföll í Kofradýpi

    Seinnipart janúar hefur borið á auknum afföllum í þremur kvíum í Kofradýpi. Búið er að tæma eina kvínna og unnið af kappi að klára slátrun upp úr hinum tveimur á helginni.

  • Lofandi árangur í baráttunni við laxalús

    Skemmst er frá því að segja að eftir að laserar frá Stingray voru settir út í kvíar og bætt var við hrognkelsum í maí og júní, hefur ekki þurft að meðhöndla gegn lús, hvorki með brunnbát né lyfjum heldur héldu þessar fyrirbyggjandi aðgerðir henni í skefjum.

  • Reglubundin sýnataka í Kofradýpi

    Á mánudaginn voru starfsmenn Náttúrustofu Vestfjarða í sýnatöku í Kofradýpi með starfsmönnum Háafells. Tekin eru botnsýni við og í grennd við eldissvæðið og niðurstöðurnar bornar saman við sýni sem voru tekin áður en eldið hófst.

  • Ný gerð netpoka tekin í notkun hjá Háafelli

    Háafell hefur tekið áhugavert og stórt skref til að lágmarka líkur á slysasleppingum í sínu sjókvíaeldi. Það byggir á innleiðingu á nýrri gerð netpoka hér á landi sem eru úr mjög slitsterkum trefjum þar sem möskvar og tvinni eru þynnri en á sama tíma sterkari en gengur og gerist. Netin hafa mikið slit- og núningsþol, sökkva vel og hafa góða UV vörn. Netin bera nafnið Royal Predator en þau hafa verið þróuð og notuð í laxeldi í Tasmaníu gegn stórum rándýrum sem hafa herjað á eldið þar.

  • Fulltrúar Bláma og Orkubúsins á dekki Ögurness, fimm karlar, ein kona, í einfaldri röð.

    Fóðurprammar á rafmagni

    Fóðurprammar Háafells, Ögurnes og Kambsnes, hafa verið nú keyrðir á rafmagni í vel á annað ár af því tilefni heimsóttu forsvarsmenn Bláma og Orkubús Vestfjarða prammana.

  • Stjörnustríð í Kofradýpi

    Nú hafa laser tæki Stingray verið rúman mánuð í kvíum Háafells.

  • Nýr Stingray leyser-búnaður gegn laxalús

    Í framhaldi heimsóknar til Noregs í desember gerði Háafell samning við Stingray á fyrstu tækjunum sem væntanleg eru síðla vors.

  • Vöktun á botni eldissvæða

    Í sjókvíaeldi Háafells er vel fylgst með botninum og lífríkinu í kringum kvíarnar.